

Starf ritara taugalækninga
Við óskum eftir lausnamiðuðum og skipulögðum einstaklingi í starf ritara á göngudeild taugasjúkdóma. Um er að ræða tímabundið dagvinnustarf til 6 mánaða og er starfið laust frá 1. júlí 2026.
Ritari gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi deildarinnar og felast verkefnin m.a. í umsjón með vinnutímaskráningu, frágangi sjúkraskráa, umsjón með bókun sjúklinga í taugarannsókn og fleira. Lögð er áhersla á góða teymisvinnu, skipulagða starfshætti og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga og starfsumhverfis.
Á taugalækningadeild Landspítala starfar öflugur hópur sérfræðilækna og annarra fagstétta í þverfaglegu teymi þar sem áhersla er lögð á faglega og samfellda þjónustu við sjúklinga með taugasjúkdóma. Deildin sinnir fjölbreyttum verkefnum og er í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans og stoðþjónustu.
Starfshlutfall er 100% eða samvæmt nánara samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Íslenska

















































