

Sérfræðingur í hjúkrun á skurðlækningadeild B6
Starf sérfræðings í hjúkrun á skurðlækningadeild B6 í Fossvogi er laust er til umsóknar frá 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.
Við leitum eftir einstaklingi sem hefur hæfileika til að leiða fólk saman, býr yfir farsælli reynslu af teymisstjórnun og leggur áherslu á að byggja upp traust og efla sálrænt öryggi í samstarfi.
Sérfræðingur í hjúkrun á skurðlækningadeild starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Starfar að framþróun hjúkrunar á deildinni, gæða- og umbótaverkefnum, ráðgjöf, kennslu og fræðslustarfsemi til starfsfólks og nemenda og tekur þátt í akademískri vinnu með þátttöku í rannsóknastarfi. Auk þess er gert ráð fyrir að sérfræðingur starfi við klínísk störf á deildinni. Starfið felur jafnframt í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við skjólstæðinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Skurðlækningadeild B6 þjónar sérgreinum háls- nef og eyrnaskurðlækninga, heila- og taugaskurðlækninga, lýtalækninga og æðaskurðlækninga. Þar starfar samhent þverfaglegt teymi sem þjónar sjúklingum sem þurfa á þjónustu að halda eftir skurðaðgerðir.
Sérfræðingur í hjúkrun vinnur sjálfstætt skv. reglugerð nr. 512/2013 og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.
Íslenska




























































