

Sálfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi
Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala óskar eftir sálfræðingi í teymi nýrrar ofbeldismóttöku barna sem falið er að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast sérhæfðrar, samfelldrar og áfallamiðaðrar þjónustu. Teymið mun sinna börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi og/eða vanrækslu.
Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á mótun og uppbyggingu nýrrar þjónustu og hentar fagaðila sem vill hafa raunveruleg áhrif á velferð barna til framtíðar.
Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis.
Starfið er unnið í nánu þverfaglegu samstarfi. Starfshlutfall er 50-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, en upphafsdagur er samkomulagsatriði. Um tímabundna ráðningu til eins árs er að ræða.
Íslenska
Enska




















































