Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Sálfræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd

Heilsuvernd óskar eftir að ráða sálfræðing í sitt öfluga ráðgjafateymi tengt heilsu- og vinnuverndarþjónustu ásamt því að þjónusta skjólstæðinga Heilsuvernd heilsugæslu í Urðarhvarfi. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en getur um leið verið hluti af sterku teymi.

Um er að ræða tímabundna ráðningu til 12-18 mánaða með möguleika á ótímabundinni ráðningu að því loknu. Starfshlutfall getur verið á bilinu 80-100% þar sem unnið er á dagvinnutíma með starfsaðstöðu í Urðarhvarfi í Kópavogi.

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn sálfræðiþjónusta
  • Greining, mat og meðferðarvinna
  • Einstaklings- og hópmeðferðir eins og við á
  • Námskeiðahald, fræðsla og ráðgjöf
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
  • Þekking og reynsla í klínískri sálfræði
  • Reynsla af vinnu með börnum er kostur
  • Þjónustulund og gott viðmót
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og ánægja af samskiptum  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar