

Barnaskólinn í Hafnarfirði - kjarnastjóri/deildarstjóri með 5 ára börn
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir lausa stöðu kjarnastjóra/deildarstjóra með 5 ára leikskólabörn.
Um er að ræða 100% starfshlutfall næsta skólaár frá og með ágúst 2026 með möguleika á fastráðningu.
Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kjarnastjóra sem er tilbúinn að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi.
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er samrekinn leik- og grunnskóli í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
- Leiða kjarnann í jákvæðni, frumkvæði og skapandi lausnamiðuðu starfi.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á kjarnanum.
- Annast daglega verkstjórn á kjarnanum og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan kjarna, milli kjarna leikskólans og milli leikskólastjóra og kjarnans.
- Ber ábyrgð á og stýrir kjarnafundum og kemur með hugmyndir fyrir undirbúningstíma starfsfólks kjarnans.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýs starfsfólks kjarnans í samvinnu við stjórnendur.
- Tryggir að sérhvert barn á kjarnanum fái móttökur og kveðjur í samræmi við hjallísk vinnubrögð, fái kennslu, leiðsögn, og umönnun eftir þörfum.
- Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðafólk barnanna á kjarnanum.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barna og stjórnun kjarnans sem skólastjórnendur fela
- Kennsluréttindi (leikskólakennari) eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af vinnu með börnum
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Jákvæðni og gleðiríkt viðmót
- Starfsfólk er í fríu fæði allan vinnudaginn og komið er til móts við séróskir um mataræði
Íslenska










