
Leikskólakennari - leikskólinn Ylur í Reykjahlíðarskóla
Leikskólinn Ylur auglýsir stöðu leikskólakennara í all að 100% starfshlutfall.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt kennarastarf í góðu starfsumhverfi barna og fullorðinna. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi.
Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit en grunnskólinn Reykjahlíðarskóli og leikskólinn Ylur eru samreknir. 25 nemendur eru í leikskólanum á aldrinum 1 árs til 5 ára. Leikskólinn er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar.
Við leitum að starfsfólki sem
• Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
• Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum
• Er lausnamiðað og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu
• Hefur reynslu/menntun af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskipum, stundvísi, hreint sakarvottorð og hafa náð þrepi C1 í íslensku.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknir skulu sendast á aðstoðarleikskólastjóra [email protected] Með umsókn skal fylgja greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og meðmælendur. Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://www.reykjahlidarskoli.is/leikskoli
Frekari upplýsingar gefur aðstoðarleikskólastjóri, Karen Ósk Kristjánsdóttir, [email protected] og í síma 464-4149
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2026.
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn yfirmanns.
• Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda
• Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann
• Sinna verkefnum er varðar uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum
• Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Góð færni í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góð íslenskukunnátta (C1)
• Reynsla af starfi leikskólakennara er mikill kostur
Íslenska










