

Sjúkraliðar á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Ný, sameinuð og stór legudeild leitar að sjúkraliða til liðs við öflugt teymi í bæklunarskurðlækningum. Deildin er 35 rúma legudeild sem tilheyrir dag- og legudeildir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæslujónustu Landspítala.
Bæklunarskurðdeild er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum sem tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi, s.s. eftir gerviliðaaðgerðir og hryggspengingar.
Við leitum að einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í teymi sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í bæklunarhjúkrun. Við bjóðum jafnt velkominn reynslumikinn sjúkraliða sem og nýútskrifaðan, því við teljum að breidd í þekkingu og reynslu sé mikilvæg.
Í boði er:
-
Fjölbreytt og krefjandi starf á nýrri deild
-
Öflugt og samheldið teymi samstarfsfólks
-
Tækifæri til að hafa áhrif á mótun deildarinnar
-
Sveigjanleiki í vöktum eftir samkomulagi
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Stuðla að góðum samstarfsanda
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta
Íslenska
















































