

Málastjóri með heilbrigðismenntun - Laugarás meðferðargeðdeild
Áhugasamur og metnaðarfullur málastjóri með heilbrigðismenntun og starfsleyfi óskast til starfa á Laugarásnum meðferðargeðdeild í geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð deild fyrir ungt fólk á aldrinum 18-35 ára með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi. Deildin er bæði legu- og dagdeild. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Á deildinni er sérstök áhersla lögð á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku allra fagstétta þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna. Starfið er laust frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi.
- Fjölbreytt meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu deildarinnar
- Virk þátttaka í fjölfaglegu samstarfi og framþróun í starfi deildarinnar
- Málastjórn fyrir einstaklinga sem sækja þjónustu sem felur í sér almenna uppvinnslu, greiningu á einkennum, færni og getu sem og gerð meðferðaráætlana
- Virk þátttaka í fjölbreyttu fræðslustarfi
- Markvisst samstarf með fjölskyldum/ aðstandendum
- Sérverkefni sem tengjast starfi deildarinnar
- Háskólamenntun og starfsleyfi í viðeigandi fagstétt svo sem þroskaþjálfun eða hjúkrun
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi og áhugi að starfa með ungu fólki
- Mjög góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
- Stundvísi, áreiðanleiki og lausnamiðun
- Jákvæðni og sveigjanleiki gagnvart hinum ýmsu störfum sem til falla í starfsemi deildarinnar
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur.
Íslenska

























































