
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Ungmennahraun - starfsfólk vantar
Frístundaklúbburinn Ungmennahraun auglýsir eftir starfsfólki. Opnunartími Ungmennahrauns er frá 13:00-16:30 alla virka daga. Í boði eru hlutastörf og tímavinnustörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Þetta starf hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Ungmennahraun er sértækt frístundarþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-20 ára og staðsett á Álftanesi. Markmið frístundarinnar er að veita ungmennum sem þar dvelja öruggt og skapandi umhverfi með það að markmiði að efla félgasfærni og sjálfstæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að styðja nemendur með sérþarfir
- Að stuðla að jákvæðu umhverfi og vera öðrum fyrirmynd
- Að efla velferð og félagslegan þroska ungmennanna
- Að fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
- Samráð og samvinna við ungmenni, foreldra, samstarfsfólk og aðra sem koma að frístundarstarfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Frumkvæði og lausnamiðað viðhorf
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skóla- og frístundaliði - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Skemmtileg störf á frístundaheimili í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg

Skemmtileg störf á frístundaheimili í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg

Stuðningsfulltrúi í Kerhólsskóla
Kerhólsskóli

Stuðningsfulltrúi í frístund – Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Skemmtilegt starf í Búsetukjarna
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Lækjamót
Suðurnesjabær

Skemmtilegt starf í búsetukjarna
Búsetukjarninn Norðurhlíð

Velferðarsvið - Seljudalur/þjónustuíbúðir
Reykjanesbær

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Stuðningsfulltrúi - Víkurskóli
Reykjavíkurborg: Skóla- og frístundasvið