

Flataskóli - umsjónarkennari í 7. bekk
Vegna óvæntra breytinga vantar einn frábæran umsjónarkennarar á miðstig Flataskóla skólaveturinn 2026-2027. Um er að ræða fullt starf.
Í Flataskóla eru um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins. Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks.
Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Áhersla er lögð á:
- Fámenna nemendahópa
- Góðan stuðning við kennara og nemendur
- Skapandi og faglegt skólastarf
Kennarar hafa tækifæri til að taka auka leyfi með því að vinna af sér tvo daga á önn.
Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda á miðstigi
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla og/eða starfi með börnum æskileg
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Áhugi og þekking á leiðsagnarnámi og skólaþróun
- Góð tölvukunnátta
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Íslenska

















