

Glerárskóli: Umsjónarkennari á yngsta stigi
Í Glerárskóla á Akureyri er laus til umsóknar 60% staða umsjónarkennara á yngsta stigi til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli er Erasmus+ vottaður og hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og sem leggur áherslu á teymisvinnu og vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við allt starfsfólk skólans.
- Kennari sinnir kennslu nemenda í miklu teymisstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
- Umsjónarkennari sinnir nemendum í árgangi með öðrum sem mynda teymi árgangsins og vinnur náið með kennurum á stiginu.
- Umsjónarkennari er tengiliður við forráðamenn.
- Umsjónarkennari útbýr námskrár skv. aðalnámskrá grunnskóla, menntastefnu Akureyrarbæjar og skólanámskrá Glerárskóla og heldur utan um nám nemenda í samvinnu við aðra kennara.
- Framhaldsmenntun er æskileg.
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg.
- Reynsla og þekking á teymisvinnu, teymiskennslu og leiðsagnarnámi.
- Hefur vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Þekking á jákvæðum aga er æskileg.
- Þekking á tækni og hvernig nýta má hana í skólastarfi.
- Áhugi og metnaður fyrir að vinna að, framfylgja og efla stefnu Glerárskóla.
- Áhugi og metnaður til að leita nýrra leiða og framþróunar í skólastarfi auk þess að efla hefðir í skólastarfi Glerárskóla.
- Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun, víðsýni og samstarfsvilji.
- Góðir skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Geta, áhugi og vilji til að starfa í síbreytilegu skólastarfi grunnskóla.
- Reglusemi, stundvísi og samviskusemi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Íslenska

















