

Glerárskóli: Stuðningsfulltrúi / Starfsfólk með stuðning í skólastarfi
Í Glerárskóla á Akureyri eru lausar stöður stuðningsfulltrúa/starfsfólks með stuðning í skólastarfi. Um er að ræða tímabundnar stöður í um 60% starfshlutfalli, þar sem starfað er fyrir hádegi, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Fyrir áhugasama er einnig möguleiki á viðbótarstarfi í frístund skólans eftir hádegi.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli er Erasmus+ vottaður og hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að jákvæðum og hugmyndaríkum einstaklingum sem sýna frumkvæði, búa yfir sveigjanleika í starfi og eiga auðvelt með mannleg samskipti. Viðkomandi þarf að hafa metnað fyrir hönd nemenda, leggja áherslu á vellíðan þeirra og árangur og taka virkan þátt í öflugu samstarfi við starfsfólk og stjórnendur skólans.
- Að aðstoða og leiðbeina nemendum í námi og leik
- Að aðstoða einstaklinga með sérþarfir
- Að aðstoða nemendur bæði í kennslustundum og utan þeirra
- Að leggja áherslu á að þroska félagslega hæfni nemenda í námi og starfi
- Að starfa í teymi stuðningsfulltrúa og einnig í teymi með kennurum
- Gæsla inni/úti og ýmis önnur störf sem tengjast nemendum
- Aðstoð við einstaka nemendur og/eða hópa
- Að starfa í samvinnu við aðra starfsmenn skólans, undir stjórn kennara og stjórnenda.
- Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi
- Æskilegt er að hafa lokið stuðningsfulltrúanámi
- Hefur yfir að ráða hvers kyns hæfileikum, menntun eða þekkingu sem er til þess fallin að auðga skólastarfið.
- Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn
- Reynsla af störfum með börnum er æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
- Frumkvæði og ábyrgð
- Samviskusemi og reglusemi
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
- Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
- Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Íslenska

















