
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Verkefnastjóri gæðamála og skólaþróunar
Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra gæðamála og skólaþróunar. Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Skrifstofan er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Innan hennar er höfð yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.
Verkefnastjóri gæðamála og skólaþróunar hefur yfirumsjón með gæðamálum í leik- og grunnskólum. Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik- og grunnskóla. Hefur yfirumsjón með innritun í leikskóla og málaflokki dagforeldra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik-, grunn- og tónlistarskóla með heimsóknum og samstarfi við gæðaráð skólanna.
- Starfar með stjórnendum og gæðaráðum leik- og grunnskóla að því að uppfylla viðmið menntastefnu Akureyrarbæjar.
- Styður við og fylgir eftir gæðamati á forvarnar- og frístundamálum Akureyrarbæjar.
- Aðstoðar við að útbúa matstæki vegna innra mats og vistun matstækja á sameiginlegu svæði.
- Starfar með verkefnastjórum leik- og grunnskóla og málefna barna og unglinga við þróun skóla- og frístundastarfs.
- Styður sviðsstjóra, verkefnastjóra og skólastjórnendur við þróunarverkefni.
- Hefur yfirumsjón með innritun og skráningu nemenda í leikskóla Akureyrarbæjar í samstarfi við skólastjóra leikskóla.
- Hefur yfirumsjón með málaflokki dagforeldra og stýrir dagforeldrateymi á fræðslu- og lýðheilsusviði. Sinnir heimsóknum og ráðgjöf til dagforeldra.
- Aðstoðar við umsóknir á styrkjum til þróunarverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
- Leyfisbréf til kennslu er kostur.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Reynsla og/eða þekking af gæðamati og þróunarstarfi æskilegt.
- Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í leik- og/eða grunnskólum kostur.
- Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í frístunda- og tómstundamálum kostur.
- Reynsla af starfi innan skólakerfisins og þekking á farsælum starfsháttum kostur.
- Þekking á framkvæmd innra mats og umbótum í skólastarfi kostur.
- Lausnamiðuð hugsun og metnaður.
- Samskiptafærni, sveigjanleiki og víðsýni.
- Góð tölvukunnátta og færni í að tileinka sér nýjungar á því sviði.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð enskukunnátta í riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Akureyri

Verkefnastjóri
Linde Gas

Verkefnisstjóri menningar, viðburða og samfélagsstarfs
Húnaþing vestra

Verkefnisstjóri barna-, ungmenna- og frístundastarfs
Húnaþing vestra

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild - Hraunvangur
Hrafnista

Verkefnastjóri skrifstofu þjónustumiðstöðvar
Rangárþing Ytra

Verkefnastjóri í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar
Reykjanesbær

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

Sérfræðingur í viðhaldsstjórnun / CMMS Specialist
atNorth

Project manager and Market Director for Infrastructure
COWI

Skipulagsstjóri í kvikmyndaframleiðslu
STILL VIVID

Verkefnastjóri kjara- og réttindamála
Sjúkraliðafélag Íslands