

Glerárskóli: Frístundafulltrúi í grunnskóla
Við Glerárskóla er laus til umsóknar 70 - 100% staða frístundafulltrúa.
Starfið er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu og er ráðið í stöðuna frá ágúst 2026.
Vinnutíminn er alltaf til kl 16:15 hvern virkan dag.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.
- Frístundafulltrúi ber faglega ábyrgð á starfsemi frístundar og hefur umsjón með starfinu sem unnið er að skólatíma loknum
- Starfið felur í sér umsjón með nemanda/nemendum
- Frístundafulltrúi þarf að sjá um skráningar í tölvukerfi og vera í samvinnu við kennara yngstu nemenda skólans
- Frístundafulltrúi ber ábyrgð á því að koma upplýsingum um starfsemi frístundar til forráðamanna og vera í samskiptum við þá
- Frístundafulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra forvarna- og frístundamála skólans og skólastjóra
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og ánægja af starfi með börnum er æskileg
- Þekking á frístundastarfi er kostur
- Frumkvæði og samstarfsvilji
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði
- Reglusemi og samviskusemi
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Íslenska










