
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Frístundaleiðbeinandi í Félagsmiðstöðina Zelsíuz
Félagsmiðstöðin Zelsíuz leitar að sjálfstæðum og skapandi einstaklingi með margvísleg áhugamál og metnað til að vinna í félagsmiðstöð fyrir öll ungmenni sveitarfélagsins Árborgar á aldrinum 10-16 ára. Markmið starfsins er að efla virkni, vellíðan og þátttöku ungmenna með skipulögðu starfi.
Um er að ræða hlutastarf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september.
Félagsmiðstöðin er staðsett í Pakkhúsinu, Austurvegi 2B á Selfossi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfmaður tekur þátt í að skipuleggja og framkvæma starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.
- Starfsmaður leitast eftir að skapa jákvætt, öruggt, hlutlaust, fordómalaust umhverfi fyrir unglingana og er fyrirmynd fyrir unglinganna í húsinu.
- Umsjón með og framkvæmd hópastarfs í félagsmiðstöðinni .
- Dagleg skýrslugerð í samráði við samstarfsfólk.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Lágmarksaldur 20 ár
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Glerárskóli: Frístundafulltrúi í grunnskóla
Akureyri

Starfsfólk óskast í búsetuúrræði Vopnabúrsins
Vopnabúrið

Umsjónarmaður frístundar í Borgarnesi
Borgarbyggð

Leikskólakennari - velkomin í hópinn
heilsuleikskólinn Urriðaból II

Frístundarleiðbeinandi
Dalvíkurbyggð

Frístundaleiðbeinandi í Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit

Hreiðrið ungmennahús leitar að frístundaleiðbeinendum fyrir veturinn 2026-2027
Hafnarfjarðarbær

Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum
Frístundaþjónusta í Árborg

Leikskólakennari skólaárið 2026-2027
Baugur

Starfsmaður í frístundaklúbbinn Kópinn
Sveitarfélagið Árborg

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar