Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Skólaliði óskast í Árbæjarskóla frá hausti 2026

Við auglýsum eftir skólaliða í fullt starf í Árbæjarskóla.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 700 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka nemenda og eftirfylgni með þeim á skólatíma
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi
  • Frímínútnagæsla eftir þörfum
  • Afgreiðsla, umsjón og gæsla í matar- og kaffitímum
  • Ræsting samkvæmt skipulagi 
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og áhugi á að vinna meö börnum
  • Reynsla af þrifum
  • Hæfni í samskiptum, ásamt frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar