Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Leiðbeinendur í leikskóla á Egilsstöðum

Tjarnarskógur Egilsstöðum auglýsir eftir starfsfólki í leikskólann næsta skólaár. Ekki hefur tekist að ráða leikskólakennara og því er auglýst eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að starfa með börnum á lifandi og fjölbreyttum vinnustað. Um er að ræða störf sem unnin eru á dagvinnutíma, alla virka daga og er starfshlutfall umsemjanlegt.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.

Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 160 börn á tveimur starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Leikskólinn Tjarnarskógur vinnur eftir Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum.

Einkunnarorð skólans eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.

Nánari upplýsingar um leikskólann: https://www.mulathing.is/is/thjonusta/menntun/leikskolar/tjarnarskogur

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna undir leiðsögn stjórnenda
  • Taka þátt og aðstoða við ummönnun barnanna
  • Aðstoða börn m.a. við matartíma og útivist. 
  • Vinna með öðru starfsfólki að velferð og þroska barnanna
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn leikskólastjóra og deildarstjóra
  • Samstarf og samvinna foreldra mikilvægt
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg en ekki skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnu
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarlönd 5, 700 Egilsstaðir
Tjarnarlönd 10, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar