Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Aðstoðarmanneskja í endurhæfingardeild - Boðaþing

Hrafnista í Boðaþingi óskar eftir að ráða inn skipulagðan og sjálfstæðan einstakling í stöðu sem aðstoðar sjúkra- og iðjuþjálfa í endurhæfingardeild.

Starfshlutfall er 80%.

Viðkomandi kemur til með að starfa undir leiðsögn sjúkra- og iðjuþjálfa. Vinnan er fjölbreytt og á sér stað á deildum, tækjasal og vinnustofum heimilisins.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.


– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Nánari upplýsingar veita Ester Gunnsteinsdóttir ([email protected]) og Guðrún Helga Kjærnested ([email protected])

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða iðju- og sjúkraþjálfara
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Framfylgja þjálfunaráætlun íbúa
  • Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa við handverk og félagsstarf
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Boðaþing 5-7 5R, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar