
Óska eftir að ráða tanntækni eða hæfa manneskju til starfa á tannlæknastofu í höfuðborginni.
Tanntæknir eða aðstoðarmaður tannlæknis.
Óska eftir að ráða tanntækni eða aðstoðarmanneskju til starfa á tannlæknastofu miðsvæðis í höfuðborginni.
Starfshlutfall og vinnutími er eftir samkomulagi - áætlað starfshlutfall er 50-80%.
Erum fyrst og fremst að leita að menntuðum tanntækni eða starfsmanni með reynslu af störfum á tannlæknastofu.
Umsækjandi þarf að búa yfir góðri almennri tölvukunnáttu, hafa ríka þjónustulund, sveigjanleika og frumkvæði, ásamt því að geta starfað undir álagi og hafa áhuga á mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni:
*Klínísk aðstoð við meðferð sjúlinga við tannlæknastól
*Sótthreinsun tækja og aðstöðu
*Símsvörun, bókanir, móttaka ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Helst menntaður tanntæknir eða manneskja með reynslu af því að starfa á tannlæknastofu.
Íslenska
Enska










