

Hjúkrunarfræðingur á almennri göngudeild 10E við Hringbraut
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á almennri göngudeild 10E við Hringbraut.
Á deildinni starfa þrjú sérhæfð hjúkrunarteymi sem veita fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu:
Kviðarholsteymi - sinnir einstaklingum með sjúkdóma í kviðarholi og veitir sérhæfða hjúkrunarþjónustu á öllum stigum meðferðar.
Meltingarteymi - sinnir einstaklingum með langvinna meltingarfærasjúkdóma, meðal annars bólgusjúkdóma í þörmum (IBD), skorpulifur og fleiri, auk sjúklinga með næringarslöngur og -hnappa. Þá er veitt meðferð á innrennslismóttöku þar sem gefin eru ýmis lyf, svo sem líftæknilyf og jafnframt framkvæmdar rannsóknir á meltingarvegi, svo sem öndunarpróf og myndhylkisrannsóknir.
Ígræðsluteymi - sinnir einstaklingum sem eru í undirbúningi fyrir eða hafa gengist undir líffæraígræðslu, auk lifandi líffæragjafa. Áhersla er lögð á fræðslu, ráðgjöf, stuðning og skipulagða eftirfylgd. Teymið starfar í nánu samstarfi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og fjölmargar sérgreinar innan Landspítala.
Hvert teymi samanstendur af öflugu þverfaglegu starfsfólki sem vinnur markvisst að því að veita framúrskarandi þjónustu og stuðla að bættum lífsgæðum sjúklinga. Um er að ræða spennandi starf fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á sérhæfðri hjúkrun, sjálfstæðum vinnubrögðum og þátttöku í þróun þjónustu.
Hvers vegna að starfa hjá okkur?
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og spennandi starf í sérhæfðu klínísku umhverfi
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
- Öflugt þverfaglegt samstarf
- Verkefni sem kalla á sjálfstæð og ábyrgðarfull vinnubrögð
- Metnaðarfullan og styðjandi vinnustað þar sem áhersla er lögð á gæði, öryggi og framþróun þjónustunnar
Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 80-100% dagvinna og er starfið laust frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Veita einstaklingsmiðaða og heildræna hjúkrunarmeðferð
- Taka þátt í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga
- Stuðla að þróun verkferla og gæðastarfs á göngudeild
- Starfa í náinni þverfaglegri samvinnu innan og utan deildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
- Góð íslenskukunnátta áskilin
Íslenska

























































