

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á öryggis- og réttargeðdeildir Kleppi
Við viljum ráða öfluga liðsmenn til starfa á öryggis- og réttargeðdeildir Landspítala. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi, unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Öryggisgeðdeildin er átta rúma og sinnir sérhæfðri meðferð og endurhæfingu sjúklinga með alvarlegar geðraskanir.
Réttargeðdeildin er einnig átta rúma deild sem veitir sérhæfða meðferð og umönnun einstaklinga sem hafa verið dæmdir ósakhæfir samkvæmt 15.gr hegningarlaga.
Meðferðarnálgun deildanna er fjölþætt og ræðst af þörfum og getu hvers og eins sjúklings. Meginmarkmið meðferðarinnar er að sjúklingar fái þá meðferð og endurhæfingu sem er nauðsynleg til þess að þeir geti komist aftur út í samfélagið.
Áhersla er lögð á fagmennsku, þróun, öryggi og umhyggju.
Vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er 36 stundir en getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
























































