

Fótaaðgerðafræðingur á innkirtladeild
Við sækjumst eftir áhugasömum og framsæknum fótaaðgerðafræðingi til starfa á innkirtladeild Landspítala. Starfið felur í sér krefjandi verkefni á sviði sykursýki og annarra innkirtlasjúkdóma. Við viljum ráða skipulagðan og lausnamiðaðan einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfshlufall er 40% eða eftir samkomulagi.
Innkirtladeild Landspítala er staðsett að Eiríksgötu 5 í Reykjavík í nýrri göngudeildaraðstöðu sem er m.a. sérstaklega hönnuð með þjónustu fótaaðgerðafræðings í huga. Á deildinni starfar yfir 20 manna þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsfólks.
Við sinnum stórum hópi einstaklinga með innkirtlasjúkdóma sem eru flóknir langvinnir sjúkdómar þar sem eftirlit til lengri tíma býður uppá náið samstarf með skjólstæðingum á dagvinnutíma. Deildin skilgreinir sig sem öndvegissetur innkirtlafræða á Íslandi og er í fararbroddi hvað varðar nýjungar í heildrænni en jafnframt skilvirkri göngudeildarþjónustu. Miklir möguleikar er á stuðningi við framhaldsnám, tengsl við erlendar stofnanir, námsferðir og rannsóknarvinnu.
Íslenska














































