

Hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi
Ertu lausnamiðaður hjúkrunarfræðingur sem hefur gaman af samskiptum?
Flæðisdeild óskar eftir að ráða til sín öflugan hjúkrunarfræðing með fjölbreytta starfsreynslu til starfa í útskriftarteymi flæðisdeildar Landspítala. Leitað er að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á Landspítala og heilbrigðiskerfinu, er góður í samskiptum og nýtur þess að vinna bæði sjálfstætt og í teymum.
Útskriftarteymið veitir starfsfólki, sjúklingum og aðstandendum ráðgjöf og stuðning við skipulagningu og framkvæmd flókinna útskrifta. Á flæðisdeildinni starfa innlagnastjórar og útskriftarteymi í nánu samstarfi með það að markmiði að tryggja sem besta dvöl sjúklinga á Landspítala, þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar að leiðarljósi.
Hópurinn er samheldinn, metnaðarfullur og leggur áherslu á gott samstarf. Starfsfólk er hvatt til að kynna sér starfsemi helstu samstarfsaðila með vettvangsheimsóknum, auk þess sem lögð er rík áhersla á símenntun og reglulega fræðslu.
Um er að ræða dagvinnu og möguleiki er á innlagnavöktum samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100% og starfið er laust frá 1. september 2026.
Íslenska














































