

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Setbergsskóli auglýsir eftir kvenkyns baðverði í íþróttahús – baðvarsla stúlkna.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann í 100% starfshlutfall í íþróttahús skólans.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 420 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.
Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn baðvarsla og þrif í íþróttahúsi Setbergsskóla.
- Aðstoða nemendur, huga að líðan þeirra og öryggi
- Aðstoða og fylgjast með nemendum í búningsklefum
- Almenn þrif eftir þar til gerðri áætlun, halda húsnæði snyrtilegu
- Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa jákvætt andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur:
- Mikill áhugi á starfi með börnum
- Mikill sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Uppbyggjandi í samskiptum, ríkur sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og efla sterka liðsheild
- Stundvísi og samviskusemi
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska

























