

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á næturvaktir barna- og unglingageðdeildar
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi óskast til starfa á barna- og unglingageðdeild Landspítala. Um er að ræða starf á legudeild, vinnufyrirkomulag eru næturvaktir eingöngu.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, dag- og legudeild og göngudeild. Legudeildin er tólf rúma sólarhringsdeild sem er opin allan ársins hring. Dagdeild þjónustar tíu skjólstæðinga í samstarfi með starfsfólki legudeildar. Á deildunum er börnum og unglingum að 18 ára aldri, með samsettan geðrænan vanda, veitt margvísleg sérfræðiþjónusta. Unnið er í þverfaglegum teymum að greiningu og meðferð og einnig er veitt ráðgjöf og fræðsla. Þjónustan tekur mið af þörfum barna og fjölskyldum þeirra. Mikil samvinna er höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Á deildinni starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi og er vinnuvikan 36 klst. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð.

























































