Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Skólahjúkrunarfræðingur í Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi leita eftir metnaðarfullum og sjálfstæðum hjúkrunarfræðingi í 25% starf í skólahjúkrun.

Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á heilsueflingu, forvarnir og andlega líðan nemenda.

Skólahjúkrunarfræðingur er hluti af stoðteymi framhaldsskóla og tekur þátt í fræðslu sem tengist heilbrigðismálum og forvörnum, veitir ráðgjöf og fræðslu til starfsfólks skólans og eftir þörfum sinnir eftirfylgni nemenda sem eiga við vanlíðan, veikindi eða langvinnan heilsufarsvanda að stríða.

Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli 
  • Er til ráðgjafar varðandi að leita frekari aðstoðar  innan heilbrigðiskerfisins. 
  • Þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og góðri liðsheild
  • Samstarf við aðra faghópa innan  skólans 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc. próf í hjúkrunarfræði og gild starfsleyfi.
  • Frumkvæði, faglegur metnaður
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar