Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta

Göngudeild innkirtla og efnaskipta á Landspítala óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa. Deildin sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með innkirtlasjúkdóma og leggur áherslu á faglega, persónulega og góða þjónustu.

Starfið felst í að sinna einstaklingum með innkirtlasjúkdóma, aðra en sykursýki. Um getur verið að ræða einstaklinga með ofvirkan skjaldkirtil, sem og sjúkdóma í nýrnahettum eða heiladingli. Að auki sjá hjúkrunarfræðinar um innkirtlarannsóknir þar sem kannað er hvort einstaklingar séu með skort eða offramleiðslu á ákveðnum hormónum.

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi.

Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5. Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsfólks með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Við leggjum áherslu á gott starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Nýr starfsmaður fær góða aðlögun og stuðning frá reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar.

Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
Íslenskukunnátta áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit einstaklinga með sjúkdóma í innkirtlum (t.d. skjaldkirtli, nýrnahettum eða heiladingli)
Fræðsla og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í teymisvinnu
Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan deildarinnar
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar