

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á Hlévangi.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem opnar í október 2026. Deildin verður 24 rýma hjúkrunardeild fyrir einstaklinga sem bíða eftir dvöl á hjúkrunarheimili.
Hluti af verkefnum aðstoðardeildarstjóra er að taka þátt í mótun starfseminnar og stefnu í samvinnu við deildarstjóra hjúkrunar.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu og mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
-
Ber faglega ábyrgð á þjónustu, skipulagi og þróun deildar
-
Stuðlar að öflugri samvinnu innan og utan deildarinnar
-
Sinnir fræðslu til nemenda og samstarfsfólks
-
Ábyrgur fyrir skráningu og innleiðingu klínískra leiðbeininga að starfsemi deildarinnar
-
Ábyrgur fyrir að byggja upp öryggismenningu á deildinni
-
Skipuleggur og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi
-
Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans
-
Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
-
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
-
Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
-
Reynsla og þekking af gæðastarfi er kostur
-
Faglegur metnaður og leiðtogahæfni
-
Samskiptahæfni
-
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
-
Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
-
Frumkvæði til verka og metnaður í starfi
Íslenska
Enska














