
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Hlutverk og stefna HSS
Heilsugæslusvið HSS sinnir heilbrigðisþjónustu við heilbrigða og sjúka sem ekki dveljast á sjúkrahúsum, sbr. 19.gr. heilbrigðislaga nr. 97/1990 og heilbrigðisáætlun heilbrigðisráðuneytisins. Heilsugæslan skal tryggja grunnþjónustu í heilsugæslu á starfssvæðinu, s.s. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, vakt- og bráðaþjónustu og forvarnarstarf. Áherslu skal leggja á málaflokka eins og áfengis- og tóbaksvarnir, slysavarnir, geðheilbrigði, hjarta- og heilavernd, næringarráðgjöf, mataræði og krabbameinsvarnir. Þá er rétt að undirstrika mikilvægi þess að efla heimaþjónustu enn frekar og hafa þannig að markmiði að skjólstæðingar, bæði aldraðir og sjúkir, geti dvalið heima hjá sér sem allra lengst.
Stefna HSS er að veita Suðurnesjabúum lögbundna heilsugæslu í heimabyggð, að unnt sé að bóka tíma samdægurs á heilsugæslu ef skjólstæðingur óskar þess og að biðtími á biðstofu eftir bókuðum tíma verði ekki meira en 30 mínútur að jafnaði.
Undir sjúkrahússvið fellur sjúkrahúsþjónusta sem greinist í lyflækningar og endurhæfingaþjónustu annars vegar og skurðlækningar og fæðingarhjálp hins vegar. Sjúkrahúsið er ætlað sjúku fólki til vistunar, þar sem læknishjálp, hjúkrun og allur aðbúnaður er í samræmi við reglugerðir og lög um heilbrigðisþjónustu. Nú er starfrækt hjúkrunardeild í Grindavík í tengslum við sjúkrahúsið og legudeild á 2. hæð í Reykjanesbæ. Á ljósmæðravakt eru fjögur rúm.
Sjúkrahúsið hefur á að skipa sérgreinalæknum bæði í skurðlækningum og lyflækningum. Þá er rekin slysa- og bráðamóttaka í nánum tengslum við heilsugæslusvið.
Stefna HSS er að uppfylla 70-80% af þjónustuþörf íbúa Suðurnesja fyrir sjúkrahúsþjónustu. Sérhæfð og flókin þjónusta verður eftir sem áður sótt til Landspítala háskólasjúkrahúss.
https://hss.is/index.php/um-hss/hss/hlutverk-og-stefna

Sjúkraliðar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Almenn sjúkraliðastörf
-
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
-
Farsæl reynsla af hjúkrun aldraðra er kostur
-
Faglegur metnaður
-
Góð samskiptahæfni
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Frumkvæði
-
Skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Gott vald á íslensku
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hlévangur, Faxabraut 13
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Sjúkraliði Efri byggð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali

Starfsfólk á Heimili fyrir Börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Aðstoðarmaður tannlæknis
Breiðaklöpp

Hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslunni Höfða
Heilsugæslan Höfða