
Bari
Bari er líflegur vínbar og veitingastaður í hjarta Reykjavíkur. Við sérhæfum okkur í einföldum en vönduðum smáréttum, góðu hráefni og vel völdum vínum – allt sett fram í afslöppuðu og stílhreinu umhverfi með mikla áherslu á góða þjónustu og stemningu.
Við erum metnaðarfullt teymi sem leggur upp úr fagmennsku, hraða og jákvæðu vinnuumhverfi þar sem allir skipta máli. Hjá okkur færðu tækifæri til að vaxa í starfi, vinna með sterkum rekstraraðila og vera hluti af veitingastað sem er að byggja upp sterkt vörumerki í miðbænum.

Vaktstjóri á Bari – vinsæll vínbar og smáréttastaður í miðborginni
Við erum að leita að öflugum og metnaðarfullum vaktstjóra til liðs við okkur. Bari er líflegur vínbar og veitingastaður sem byggir á vönduðum smáréttum, góðri stemningu og framúrskarandi þjónustu.
Við leitum að einstaklingi sem hefur sterka reynslu úr þjónustu og rekstri veitingastaða, brennur fyrir gestrisni og hefur getu til að leiða teymi í hraðskreiðu umhverfi. Starfið hentar einstaklingi sem er lausnamiðaður, skipulagður og nær að halda háum gæðum í þjónustu jafnvel á annasömum kvöldum.
Mikil áhersla er lögð á fagmennsku, þjónustulund, samskipti og auga fyrir upplifun gesta. Þekking og áhugi á vínum og veitingastöðum er stór kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur salar og þjónustu
- Umsjón með starfsfólki, vaktaplönum og þjónustuflæði
- Tryggja framúrskarandi upplifun gesta
- Þjálfun og hvatning starfsfólks
- Samvinna við eldhús og eigendur um daglegan rekstur
- Eftirlit með gæðum, skipulagi og stemningu staðarins
- Umsjón með vínþjónustu og framsetningu í sal
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af rekstri eða stjórnun á veitingastað
- Sterk reynsla úr þjónustu (FOH reynsla er krafa)
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Góð þekking og áhugi á vínum er mikill kostur
- Hæfni til að leiða teymi og vinna undir álagi
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á rekstur og upplifun staðarins
- Vinna með metnaðarfullu og öflugu teymi
- Lifandi og skemmtilegt vinnuumhverfi í miðbæ Reykjavíkur
- Tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
- Samkeppnishæf kjör fyrir réttan aðila
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BarþjónustaFagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiSkipulagTeymisvinnaVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjóri Farþegaþjónustu (tímabundið starf til 18 mánaða)
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Varaslökkviliðsstjóri
Slökkvilið Fjarðabyggðar

Hjúkrunardeildarstjóri á bráðadagdeild lyflækninga og heimaspítala
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali

VAKTSTJÓRI Í SAL
ROK

Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs
Hrafnista

Forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi
Hrafnista

Deildarstjóri innkaupa og birgðastýringar
STOÐ

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali