
Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Nýtt hlutverk Barna- og fjölskyldustofu felst í að sinna málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir út frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Barna- og fjölskyldustofa leitar því að framsæknum leiðtoga sem hefur þekkingu á málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir og hæfni til að leiða nýtt sérhæft búsetuúrræði. Um er að ræða búsetuúrræði sem veitir börnum með fjölþættar stuðningsþarfir einstaklingsmiðaðan og faglegan stuðning í öruggu umhverfi. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sviðs búsetu og samþættrar þjónustu.
-
Dagleg stjórnun og rekstur búsetuúrræðisins.
-
Ábyrgð á faglegu starfi búsetuúrræðisins.
-
Leiða þróun faglegs starfs og þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir í samstarfi við fagteymi sviðsins.
-
Ábyrgð á samskiptum við barnaverndarþjónustu, fjölskyldur og aðra lykilaðila í þjónustu við börnin.
-
Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun innan stofnunarinnar.
-
Fer með mannaforráð.
-
Meistarapróf í sálfræði, félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af starfi með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.
-
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
-
Þekking á innleiðingu nýrra verkefna kostur.
-
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni.
-
Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Enska
Íslenska










