Landspítali
Landspítali
Landspítali

Yfirlæknir barnalækninga á Barnaspítala Hringsins

Starf yfirlæknis barnalækninga á Barnaspítala Hringsins er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri kvenna- og barnaþjónustu.

Leitað er eftir sérfræðilækni innan barnalækninga með reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við stjórnendateymi kvenna- og barnaþjónustu og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. nóvember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í barnalækningum
Reynsla í barnalækningum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
Færni og reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun barnalækninga, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar