

Skrifstofustarf - Rafaela
Landspítali leitar að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með áhuga á þróun, gæðastarfi og nýtingu gagna í hjúkrun. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felst í daglegum rekstri, viðhaldi og þróun Rafaela hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfis, sem er lykilverkfæri við mat á hjúkrunarþyngd sjúklinga og álagi á deildum spítalans. Verkefnin eru margþætt og fela meðal annars í sér samskipti við stjórnendur, úrvinnslu gagna, kennslu og leiðbeiningar um notkun kerfisins og upplýsinga úr því, ásamt greiningu á tengslum hjúkrunar og útkomum sjúklinga.
Hér er einstakt tækifæri til að taka þátt í að efla faglega starfsemi hjúkrunar með gagnreyndri þekkingu. Um er að ræða 80-100% dagvinnustarf og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
- Daglegur rekstur og viðhald Rafaela hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfis
- Áframhaldandi innleiðing kerfisins á Landspítala
- Þróun á notkun upplýsinga úr Rafaela dkerfinu við rekstur, stjórnun og rannsóknir
- Hagnýting þekkingar til nýsköpunar í hjúkrun
- Þróun árangurs- og gæðavísa í hjúkrun
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
- Þekking í tölfræði (og aðferðafræði) ásamt reynslu af rannsóknarvinnu
- Reynsla af stjórnun í hjúkrun er kostur
- Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
- Góð tölvukunnátta
- Jákvætt viðmót og góð/framúrskarandi hæfni í samskiptum
Íslenska
Enska




























































