

Ræstingastjóri í ræstingaþjónustu
Ræstingþjónusta Landspítala auglýsir laust til umsóknar starf ræstingastjóra. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu ásamt bakvöktum þriðju hverja viku, virka daga frá kl. 16:00-24:00 og allan sólarhringinn um helgar.
Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika. Starfið er laust frá 1. desember 2025.
Ræstingaþjónusta Landspítala sér um að vinna eftir skipulagi sem tryggir að húsnæði spítalans sé til fyrirmyndar og gæði ræstinga séu í samræmi við skilgreind gæði. Ræstingastjóri þarf að taka próf í Insta 800 staðlinum og hljóta einstaklingsvottun ásamt því að taka námskeið í hreinlætistaðlinum DS 2451 10. Hann er skoðunaraðili og á að framkvæmda skoðanir í samræmi við staðlaða.
Ræstingastjóri heyrir undir deildarstjóra ræstingaþjónustu og teymisstjóra ræstingaþjónustu en þeir skipta með sér verkum. Ræstingastjóri ber ábyrgð á því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum. Ræstingastjóri er hluti af teymi deildarinnar og vinnur með öllum að þeim verkefnum sem upp kunna að koma.
Ræstingastjóri er einn af þremur starfsmönnum með það starfsheiti. Húsum Landspítala er skipt milli þeirra og eru þeir ábyrgðaraðilar ákveðinna svæða. Þeir bera ábyrgð á að skipulag sé rétt í samræmi við tíðnitöflur og eiga að láta deildarstjóra vita um allar breytingar. Ræstingaþjónusta Landspítala heyrir undir kjarna aðfanga og umhverfis á þjónustusviði Landspítala.
- Daglegt eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd ræstinga í sínum húsum
- Framkvæma skoðanir skv. stöðlum
- Samskipti við verktaka/ framkvæmdaraðila ræstinga
- Vöktun á beiðnakerfi, Main Manager og viðbrögð við beiðnum af öllum tegundum þegar þörf er á
- Tekur bakvaktir utan dagvinnutíma þriðju hverja viku.
- Menntun sem nýtist í starfi
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Gerð er krafa um íslenskukunnáttu
- Kostur að tala pólsku
- Kostur að hafa unnið við eða komið að skipulagi ræstinga á sjúkrahúsum
- Kostur að hafa tekið einstaklingsvottun þekkingarstig 3 í Insta staðli
Íslenska




























































