

Verkefnastjóri á launadeild
Við leitum að metnaðarfullum og nákvæmum verkefnastjóra til að ganga til liðs við launadeild Landspítala. Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf þar sem unnið er að flóknari þáttum launavinnslu, greiningarvinnu og þróun ferla tengdum launamálum.
Launadeild heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið en á deildinni starfa 17 einstaklingar í nánu samstarfi við starfsfólk spítalans. Meginverkefni launadeildar eru að tryggja að launavinnsla, afgreiðsla launa og launatengdra mála hljóti afgreiðslu í samræmi við samninga, lög, verklagsreglur og leiðbeiningar.
Við sækjumst eftir öflugum einstaklingi sem er lausnamiðaður, fljótur að læra og tileinka sér hlutina, með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og sýnir frumkvæði, nákvæmni og aga í vinnubrögðum.
Starfshlutfall er 100% og er upphafsdagur skv. samkomulagi. Í boði er stytting vinnuvikunnar, góð vinnuaðstaða, verkefnamiðað vinnurými og gott mötuneyti.
- Greining og úrvinnsla gagna tengd launakerfum, launakostnaði og upplýsingum úr mannauðskerfum
- Ráðgjöf og stuðningur við samstarfsfólk og stjórnendur varðandi launamál og túlkun kjara- og stofnanasamninga
- Þróun og endurbætur á vinnuferlum og verklagi innan launadeildar
- Þátttaka í innleiðingu og prófunum nýrra kerfa og lausna
- Umsjón með flóknari tilvikum í launaútreikningum, leiðréttingum og eftirfylgni ásamt ýmsum sérverkefnum
- Skýrslugerð og greiningar
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Greiningarhæfni, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt að flóknum verkefnum
- Frumkvæði, nákvæmni og hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og faglegan hátt
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Þekking á launavinnslu er skilyrði
- Þekking á launakerfi Orra og Vinnustund er kostur
- Þekking á kjarasamningum og stofnanasamningum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Íslenska
Enska




























































