

Verkefnastjóri knattspyrnudeildar Fylkis
Knattspyrnudeild Fylkis óskar eftir kraftmiklum og skipulögðum verkefnastjóra til starfa með stjórn knattspyrnudeildar. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á íþróttastarfi, býr yfir góðum samskiptahæfileikum og getur tekið frumkvæði í fjölbreyttum verkefnum innan félagsins.
· Umsjón og aðstoð við viðburði, fjáröflun og samfélagsverkefni á vegum deildarinnar
· Tengiliður milli stjórnar, ráða og annarra eininga innan félagsins
· Aðkoma að miðlun efnis á samfélagsmiðlum
· Önnur tilfallandi verkefni í þágu deildarinnar
· Hefur góða skipulagshæfileika og tekur ábyrgð í verkefnum
· Sýnir frumkvæði og er lausnarmiðaður
· Á auðvelt með mannleg samskipti og getur unnið með fólki á öllum aldri
· Hefur reynslu innan íþróttahreyfingarinnar eða þekkingu á skipulagi íþróttastarfs
· Getur unnið sjálfstætt og í teymi
Íslenska
Enska










