

Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lyflækningadeild
Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við leitum eftir 1.- 4. árs hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-80%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Störfin eru laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Deildin er 18 rúma bráðalegudeild almennra lyflækninga. Þar starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
-
Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
-
Þátttaka í teymisvinnu
-
Hjúkrunarnemi á 1.-4. ári
-
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
-
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
-
Hæfni og geta til að vinna í teymi
-
Íslenskukunnátta áskilin
Íslenska




























































