Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma

Við óskum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og lifandi dagvinnustarf á göngudeild augnsjúkdóma. Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma á Íslandi og samanstendur af göngudeild, dagdeild og sérhæfðum skurðstofum.

Hvað býðst þér?

Fjölbreytt og tæknilegt starf þar sem þú:

  • Starfar í margvíslegum verkefnum frá móttöku til skurðstofu

  • Færð einstaklingsmiðaða starfsþjálfun og skipulagða fræðslu

  • Getur fengið stuðning við frekari starfsþjálfun með námsheimsókn eða sérnámi í augnhjúkrun erlendis

  • Starfar í sérhæfðu umhverfi, í þverfaglegu samstarfi þar sem ríkir góður starfsandi

Vinnuskilyrði:

  • Dagvinna, allt að 100% starfshlutfall (60-100%)

  • 36 stundu vinnuvika í fullri dagvinnu

  • Vinnuumhverfi sem stuðlar að jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttökuþjónusta: Móttaka sjúklinga og fræðsla
  • Rannsóknir: Forskoðanir, sjónmælingar, sjónsviðsmælingar og augnbotnamyndatökur
  • Skurðstofa: Móttaka og aðstoð við lyfjagjafir
  • Gæðastarf: Þátttaka í þróun þjónustu við skjólstæðinga
  • Önnur tilfallandi verkefni og undirbúningur fyrir aðgerðir
Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar