Landspítali
Landspítali
Landspítali

Ertu sérfræðingur í geðhjúkrun?

Starf sérfræðings í geðhjúkrun á göngudeild lyndisraskana í geðþjónustu Landspítala er laust til umsóknar. Ráðning er frá 1. nóvember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á göngudeild lyndisraskana starfa þverfagleg teymi sem veita sérhæfða þjónustu. Áhersla er lögð á heildræna nálgun, gagnreynda meðferð og samfellda þjónustu í nánu samstarfi við skjólstæðinga og aðstandendur. Jafnframt er lögð áhersla á uppbyggingu og eflingu geðhjúkrunar sem verður eitt af hlutverkum sérfræðings í geðhjúkrun í samstarfi við stjórnendur.

Leitað er að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í geðhjúkrun sem hefur áhuga á þróun þjónustu, uppbyggingu geðhjúkrunar og umbótastarfi. Gerð er krafa um leiðtogahæfni og góða færni í þverfaglegu samstarfi. Sérfræðingur í geðhjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala og ber ábyrgð á framþróun hjúkrunar innan göngudeildar lyndisraskana og starfar einnig þvert á einingar geðþjónustu.

Sérfræðingur í geðhjúkrun vinnur sjálfstætt samkvæmt reglugerð nr. 512/2013 um menntun, réttindi og skyldur sérfræðinga í hjúkrun og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.

Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu þverfaglegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á faglegan metnað, nýsköpun, þróun þjónustu og stöðuga uppbyggingu þekkingar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarapróf í hjúkrun og sérfræðileyfi í geðhjúkrun
Klínísk reynsla af geðheilbrigðisþjónustu og meðferð einstaklinga með lyndisraskanir
Reynsla af gæða- og umbótastarfi
Reynsla af kennslu, handleiðslu og fræðslu
Hæfni til að leiða þróunarverkefni sem stuðla að faglegri framþróun
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínískt starf og sérhæfð ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda
Þróun, innleiðing og mat á gagnreyndum hjúkrunar- og meðferðarúrræðum
Forysta í gæða- og umbótaverkefnum sem stuðla að bættri þjónustu
Fræðsla, handleiðsla og ráðgjöf til hjúkrunarfræðinga, annars heilbrigðisstarfsfólks og nemenda
Virk þátttaku í rannsóknum, þróunarverkefnum og akademísku starfi
Þátttaka í stefnumótun og faglegri þróun geðhjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala
Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar