

Hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Barna- og unglingageðdeild Landspítala óskar eftir hjúkrunarfræðingi til starfa í nýtt teymi sem falið er að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast neyðarvistunar á Stuðlum.
Starfið heyrir undir barna- og unglingageðdeild þar sem aðal starfsstöð teymis verður en þjónusta verður einnig veitt á öðrum deildum Landspítala og Stuðlum. Möguleiki er á því að starfa samhliða í nýju teymi og öðrum verkefnum innan barna- og unglingageðdeildar.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Þar starfa um 100 einstaklingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar á deildinni. Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis auk handleiðslu frá reynslumiklum fagaðilum. Þannig getur starfið bæði hentað reynslumiklum fagaðilum sem og þeim sem yngri eru í starfi.
Starfshlutfall er 80-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, en upphafsdagur er samkomulagsatriði. Starfinu fylgja bakvaktir en vel er gætt að hvíldartíma starfsfólks á deildinni.
Íslenska




























































