

Hjúkrunarfræðingar á öldrunardeild Landakoti
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn í hlýlegu starfsumhverfi.
Öldrunardeild er staðsett á Landakoti í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili. Áhersla er lögð á nærgætin samskipti og mannúðlega nálgun.
Upphaf starfa og starfshlutfall er samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Bryndísi, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska




























































