

Sumarstörf 2026 - Hjúkrunarnemar á 1. ári
Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir nema í hjúkrunarfræði sem lokið hafa 1. námsári fyrir sumarið 2026.
Í boði eru störf víða um . Hvar liggur þinn áhugi?
Vinsamlegast tilgreinið í reitinn annað með stuttum rökstuðningi ef ósk um sumarstarf á tiltekinni deild eða þjónustusviði, s.s. ef starfsreynsla sem nýtist þar sérstaklega.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Unnið skv. starfslýsingu 1. árs hjúkrunarnema
- Hjúkrun í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Hafa lokið fyrstu önn í hjúkrunarfræði (30ECTS) og sé skráður í nám á vorönn
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
Íslenska




























































