

Sálfræðingur á göngudeild barna- og unglingageðdeildar - ADHD-greiningar unglinga
Metnaðarfullur sálfræðingur óskast til starfa á göngudeild barna- og unglingageðdeildar. Um er að ræða tímabundið starf (40-100%) í greiningarteymi til eins árs. Starfið felur í sér margvísleg verkefni sem snúa að ADHD greiningum barna á aldrinum 15-18 ára. Starfið getur hentað bæði nýjum sem og reynslumiklum sálfræðingi. Ráðið verður í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á barna- og unglingageðdeild eru göngu-, dag- og legudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingsmiðuð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
- Greiningarvinna á geðrænum vanda unglinga.
- Notast er við rafræna útgáfu af K-SADS greiningarviðtalinu í greiningarferlinu.
- Starfar í þverfaglegu teymi að greiningu og mati á geðrænum vanda barna og unglinga
- Upplýsingaöflun byggð á viðtali við foreldra, barn og fyrirliggjandi gögnum
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
- Þekking á notkun K-SADS greiningarviðtalsins
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og geta til að takast á við krefjandi verkefni
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggis- og gæðaverkferlum deildar
- Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
- Góð tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi, sem eiga íslensku ekki að móðurmáli, er kostur
- Hreint sakavottorð
Íslenska






















































