

Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Barna- og unglingageðdeild Landspítala óskar eftir reynslumiklum hjúkrunarfræðingi í starf leiðtoga nýs teymis sem er falið að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast neyðarvistunar á Stuðlum. Starfið heyrir undir barna- og unglingageðdeild þar sem aðal starfsstöð teymisstjóra verður en þjónusta verður einnig veitt á öðrum deildum Landspítala og Stuðlum í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi fagfólks.
Teymisstjóri verður leiðandi í mótun samvinnu og framtíðarsýnar með hagaðilum og stjórnendum á barna- og unglingageðdeild. Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis.
Starfshlutfall er 80-100%. Starfinu fylgja bakvaktir og vel er gætt að hvíldartíma starfsfólks. Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Þar starfa um 100 einstaklingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Teymisvinna er í kjarna starfanna á barna- og unglingageðdeild og handleiðsla frá reynslumiklum fagaðilum stendur til boða. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
Íslenska




























































