

Læknir með lækningaleyfi - tímabundið starf
Læknir með lækningaleyfi óskast í starf á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tvö störf tímabundið til sex mánaða frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi, með möguleika á framlengingu.
Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum; bæði í lyflækningum og geislameðferð krabbameina og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði. Einnig er góð samvinna við aðrar starfsstéttir innan starfseminnar.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum en einnig þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.
Starfsumhverfið er lærdómsmiðað. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.
Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.
Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.
Íslenska






















































