

Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Langar þig í fjölbreytt starf þar sem þú hefur áhrif, vinnur náið með fólki og tekur þátt í að móta öfluga starfsemi?
Við leitum að jákvæðri og skipulagðri manneskju sem hefur frumkvæði, góða yfirsýn og brennur fyrir góðri vinnustaðamenningu.
Aðstoðarmaður deildarstjóra er lykilaðili í daglegri starfsemi deildarinnar. Hann vinnur náið með deildarstjóra, aðstoðardeildarstjórum og samstarfsfólki og tekur þátt í margvíslegum verkefnum sem snúa að skipulagi, mönnun, samskiptum, umbótastarfi og þróun starfseminnar.
Þetta er starf fyrir einstakling sem hefur gaman af því að leysa úr verkefnum, halda utan um ólík mál samtímis og vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
Öldrunardeild L5 er staðsett á Landakoti í fallegu og friðsælu umhverfi í hjarta Reykjavíkur. Á deildinni starfar samhentur hópur sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og fagmennsku. Unnið er í þverfaglegum teymum með það að markmiði að styðja sjúklinga til sjálfstæðis og betri lífsgæða.
Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Hjördísi, deildarstjóra.
Íslenska




























































