Verkefnastjóri á verkefnastofu
Verkefnastofa Landspítala leitar eftir öflugum og framsýnum verkefnastjóra til að leiða fjölbreytt verkefni. Verkefnastofa er í fararbroddi í umbótarstarfi spítalans og stýrir innleiðingu á stafrænum lausnum, umbótaverkefnum, vinnustofum o.fl. Verkefnastofa Landspítala vinnur samkvæmt aðferðafræði faglegrar verkefnastjórnunnar og þar vinna um 15 verkefnastjórar. Teymið vinnur þvert á allan spítalann og styður stjórnendur og annað starfsfólk m.a. við að bæta þjónustu við sjúklinga, bæta vinnuumhverfi og draga úr sóun.
Ef þú hefur áhuga á að hafa áhrif og stýra verkefnum sem móta heilbrigðisþjónustu framtíðar á Íslandi, þá gæti þetta verið starf fyrir þig.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust 1. ágúst 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði verkefnastjórnunnar er skilyrði
Reynsla í faglegri verkefnastjórnun í hlutverki verkefnastjóra
Reynsla í að stilla upp og vinna með árangurmælikvarða
Reynsla af verkefnastjórnun innan heilbrigðisgeirans er kostur.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna samkvæmt ferlum og verklagi verkefnastofu við verkefnastjórnun, svo sem áætlanagerð, utanumhald með verkefnahóp og hagsmunaaðila, stýra verkefni skv. áætlunum, skrá framvindu verkefna o.fl.
Leiðtogi í verkefnavinnu: er fyrirmynd í stöðugum umbótum, leiðir fjölbreytt verkefni og stuðlar að því að þau nái settum markmiðum. Verkefnastjóri styður við að verkefni séu valin í samræmi við stefnumótandi markmið. Styður við stjórnendur við val og mótun verkefna, þarfagreiningar og forgangsröðun.
Þverfagleg samvinna: vinnur náið með framkvæmdastjórum, stjórnendum og hagsmunaaðilum þvert á spítalann og stuðlar að menningu samstarfs, umbóta og nýjunga. Stuðlar að samlegðaráhrifum verkefna og afurða þvert á spítalann og að skilvirkum samskiptum og upplýsingaflæði til hagsmunaaðila.
Gæði og öryggi: tryggir að unnið sé samkvæmt stjórnarháttum verkefnastofu, að verkefni skili mælanlegum niðurstöðum og öryggi sjúklinga og starfsfólks sé ávallt haft að leiðarljósi í verkefnavinnu.