

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild bæklunarskurðlækninga
Við sækjumst eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á göngudeild bæklunarskurðlækninga í Fossvogi. Á göngudeildina leita sjúklingar á öllum aldri vegna brota og annarra áverka. Þar er einnig sinnt eftirfylgd eftir aðgerðir ásamt því að dagaðgerðir eru framkvæmdar. Starfshlutfall er 70-100% og unnið er í dagvinnu. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma og boðið upp á 4, 6 og 8 klst. vaktir. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsánægja á deildinni er mikil og lögð er áhersla á góð samskipti og gagnkvæma virðingu. Starfið er fjölbreytt og góð samvinna starfsstétta þar sem unnið er markvisst að umbótum og framþróun.
Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað ríkri þekkingu og reynslu og starfið býður upp á góða möguleika á starfsþróun. Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að efla heilsu og öryggi og skapa betri skilyrði til að samræma vinnu og einkalíf.

















































