

Aðstoðardeildarstjóri á Eir endurhæfingu, blundar í þér stjórnandi? - Tímabundin ráðning
Frábært tækifæri til að hefja stjórnunarferillinn.
Eir endurhæfing óskar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og hressum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í 80-100% starf. Um tímabundna afleysingu vegna fæðingarorlofs er að ræða en möguleiki er á áframhaldandi ráðningu að tímabili loknu.
Endurhæfingardeild Eirar er rekin í samstarfi við Landspítala og koma skjólstæðingar þaðan í endurhæfingu. Árangur deildarinnar er mikill og útskrifast langflestir aftur heim til sín. Starfsemin er metnaðarfull þar sem þverfagleg samvinna á milli starfsstétta er lykillinn að árangri.
Mikilvægt er að viðkomandi geti tekið þátt í teymisvinnu, setið fjölskyldufundi og verið í samskiptum við ættingja.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.
- Ábyrg og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra.
- Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
- Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi
- Almenn störf hjúkrunarfræðings/vaktstjóra að hluta.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
- Stjórnunarreynsla er kostur en ekki skylda.
- Jákvætt viðmót og samskiptahæfni.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.












