
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Viðskiptastjóri
Við leitum að drífandi viðskiptastjóra til að bætast við öfluga söluteymið okkar. Um er að ræða þjónustu og ráðgjöf við hóp af okkar frábæru viðskiptavinum.
Sem viðskiptastjóri hjá Securitas sinnir þú daglegum samskiptum við viðskiptavini og sérð um ráðgjöf og tilboðsgerð. Þú veitir góða upplýsingagjöf til viðskiptavina og fylgir málum eftir, sem og vinnur að nýjum sölutækifærum.
Helstu verkefni og ábyrgð eru:
- Bera ábyrgð á þjónustu, ráðgjöf og úrvinnslu mála við viðskiptavini sína
- Skapa og styrkja góð tengsl við núverandi og verðandi viðskiptavini
- Opna og taka á móti sölutækifærum
- Hafa góða þekkingu á vöruframboði og lausnum sem Securitas býður upp á
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af sambærilegu starfi
- Þekking og reynsla á aðferðum CRM er kostur
- Framúrskarandi samskiptafærni og mikil þjónustulund
- Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæði vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí nk. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Nánar upplýsingar um starfið veitir Hafþór Theodórsson deildarstjóri sölu og þjónustu, í síma 580-7000.
Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur4. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiViðskiptasamböndÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (10)

Ert þú söludrifinn einstaklingur?
Billboard og Buzz

Viðskiptastjóri
Icepharma

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri byggingalausna
Húsasmiðjan

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í álgluggum og iðnaðar- og eldvarnarhurðum
Húsasmiðjan

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í gluggadeild
Húsasmiðjan

Sölufulltrúi / Business Development Manager
Teya Iceland

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur

Viðskiptastjóri AVIS á Íslandi
Avis og Budget

Business Development Manager - Payments
Planet Payment Iceland ehf.

Viðskiptastjóri
Rapyd Europe hf.